BodyBoard - Nýjung hjá Surf.is
Nú bjóðum við á skemmtilegan valmöguleika á námskeiðunum okkar því við höfum tekið inn 10stk af Alder Assasin bodyboard brettum. Alder Assasin brettin eru sterk og henta byrjendum og lengra komnum.
Töluvert auðveldara er að ná tökum á bodyboarding og þetta verður skemmtileg viðbót við námskeiðin hjá okkur.
Notast er við sérstök fit (froskalappir) til að drífa sig áfram og ná öldu. Nú er hægt að velja á milli eða prófa surf og bodyboard í einni og sömu ferðinni.
Skráning á námskeið 13-14 mars !
Erum byrjaðir að fylla á surfnámskeið helgina 13 - 14 mars. Stefnan er tekin á laugardaginn 13 mars en sunnudagurinn 14 mars geymdur til vara. Við munum fylgjast með sjólagi og velja þann dag sem gefur skemmtilegra surf. Að gefnu tilefni má nefna að þó að sé kalt í veðri er ekki ekki kalt í sjónum. Þeir sem komast ekki á þessum tíma geta sent okkur póst og við setjum þá niður á önnur námskeið með vorinu.
Námskeiðin byrja 1 mars 2010
Það er greinilegt að surfið er komið til að vera á Íslandi! Námskeiðin slógu í gegn á síðasta ári og í fyrsta skipti er nú hægt að kaupa allt fyrir sportið hér á Íslandi. Við byrjum með námskeiðin á sama tíma þetta ár og í fyrra, eða 1.mars. Langbesti tíminn er í vor en minna er um góðar öldur á sumrin. Við hvetjum alla til að skrá sig og minnum á að námskeiðagjaldið gengur upp í búnað. Það er því engu að tapa og klárlega er best að skrá sig núna til að komast að sem fyrst.
Jóla surf - Flottar jólagjafir
Það er flott að gefa surfvörur í jólagjöf. Það er hægt a fá allt milli himins og jarðar á www.gummibatar.is . Allft frá gjafabréfi að eigin vali upp í brimbretti. Flott samantekt um surf í Kastljósi
Þann 11. nóvember síðastliðinn var gerð mjög flott samantekt á sportinu sem kom fram í Kastljósi http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472059/2009/11/11/1/
|






