Frétt um námskeiðin á Extremehorizon
Nýlega rataði frétt um okkur (og ykkur sem hafa sótt námskeiðin) á Extremehorizon.com . Þeim finnst alger snilld að surfið sé kynnt hér á landi með markvissum hætti. Ísland er greinilega spennandi staður og höfum við verið í sambandi við þá síðustu daga til að fylla upp í þau göt sem við getum ekki með GUL búnaðinum. Þe. við verðum í samstarfi við þá með allt sem viðkemur aukahlutum svo sem vax, poka, lím, viðgerðarefni og fl. fl. Einnig erum við að reyna að fá inn ódýr bretti frá þeim en þau eru dýr eins og flestir vita.
Fyrir þá sem vilja sjá fréttina í heild er hægt að smella hér: http://extremehorizon.blogspot.com/2009/06/how-far-north-can-you-surf-iceland.html
Námskeið 23 MaíVeður og vindar beindu okkur í Sandvíkina þennan morgun með þeim félögum Hauki, Gumma, Guðjóni og Fjölni. Steini Backman fór fyrir þeim félögum og fengu þeir töluvert brim sem gerði ekkert annað en að auka stemmarann. Eftir einn og hálfan tíma í sjónum var tekin kakópása og skellt sér útí aftur. Þegar leið á daginn var kominn soldill straumur með landi og öldurnar nokkuð stórar. Flestir ef ekki allir náðu að standa og dagurinn var í heildina snilld. Þreyttir félagarnir héldu heim á leið eftir hádegi reynslunni ríkari og höfðu eflaust eitthvað skemmtilegt til að rifja upp um kvöldið.
Námskeið 16 MaíBrunað var í Þorlákshöfn laugardagsmorguninn 16 maí. Allir skemmtu sér vel enda veðrið gott. Tveir drengir og tvær stúlkur brunuðu öldurnar undir leiðsögn Ingó. Surfið var ágætt til að byrja með en minnkaði þegar leið á daginn. Gaman að segja frá því að blaðakona og ljósmyndari frá tímaritinu Nýju Lífi voru með í för og við eigum væntanlega von á skemmtilegri grein í næsta hefti. Á myndinni til vinstri sést vaskur ljósmyndari Nýs Lífs vopnaður vatnsheldri myndavél tilbúinn í slaginn.
Námskeið sunnudaginn 3 MaíÞegar við höldum námskeið þarf að gera ráð fyrir að hafa báða helgardagana frátekna ef sjólag hentar ekki til kennslu. Það gerðist einmitt á laugardag en þá voru öldur heldur stórar og ákváðum við þá að nota sunnudaginn þar sem spáin var betri. Við uppskárum frábærar öldur við Þorlákshöfn og aðstæður eins og þær gerast bestar. Að venju voru fjórir í senn og náðu þeir allir að standa en einhverjir höfðu fiktað við þetta áður erlendis. Frábær dagur ! Námskeið laugardaginn 25 Apríl
|





Að þessu sinni var það surfkennarinn Steini Backmann sem tók sinn fyrsta hóp á námskeið (þeas á Íslandi) en námskeiðið var haldið í sandvíkinni við Þorlákshöfn. Steini stóð sig vel enda sprenglærður í þessum fræðum. Það leit út í fyrstu að ekki mikið surf væri í gangi en austar á ströndinni fundu þeir þó sandleirur sem brotnaði á og mynduðu fínar aðstæður til kennslu. Hópurinn samanstóð af góðum vinum sem ákváðu að skella sér saman allir sem einn... þeim Friðrik, Eysteini, Steina og Jóhanni. Þeir voru samtals þrjá tíma í sjónum enda sjórinn farinn að hitna og fínasta veður.


