Námskeið í dag laugardaginn 10. apríl

Í dag gerðum við okkur glaðan dag í Sandvík á Reykjanesi. Það var ekki mikið surf þegar við komum rúmlega níu um morguninn þannig að við skelltum okkur bara í bakaríið í Grindavík og spjölluðum meira saman. Við biðum róleg enda treysti allur hópurinn á reynslu og visku Ingós en hann tjáði okkur að surfið myndi koma þegar fjaraði betur út. Með okkur í för var nýr kennari, Steini sem ætlar einnig að kenna fyrir okkur í sumar og stóð hann sig með prýði drengurinn enda með gráður í þessum fræðum. Einnig prýddi hópinn tvær stúlkur. Þegar við komum tilbaka leit þetta bara þokkalega út og gátu nemendur vaðið á sandgrynningum í mittishæð og æfðu sig í að ná öldum. Rétt utar við grynningarnar komu stærri öldur inn sem gaman var að glíma við. Við eyddum töluverðum tíma í sjónum þangað til að flautað var til leiksloka, allir kátir og hressir eftir daginn.

Myndir frá námskeiðinu komnar í myndasafn.

 

Námskeið um páskana

Við ætlum að opna fyrir möguleikann á að halda fleiri en eitt námskeið núna um páskana og í þeim efnum höfum við sent pósta á þá sem eru á skrá hjá okkur auk þess að hafa skellt upp facebook auglýsingu. Við bendum samt fólki á að það þarf að gera ráð fyrir að þurfa hliðra námskeiðum á milli daga til að ná góðu surfi. Nánari upplýsingar á surf@surf.is eða Síma: 6607570. 

 

Ný sending komin í hús hjá GG

Það er komin sending með brettum og göllum hjá Gúmmíbátum & Göllum. Það kom slatti af GUL Vortex gallanum þar varla þarf að kynna lengur og dass af 5mm skóm. Um að gera að skella sér á búnað í sinni stærð meðan þetta er til. Að vanda er reynt að hafa þetta eins billegt og hægt er. Nánari upplýsingar á www.gummibatar.is
 

Námskeið laugardaginn 28 mars

Já það var allsvakalegt þegar við mættum í Sandvík laugardaginn 28 mars. Fullbókað námskeið og fjórir vaskir strákar voru tilbúnir að skella sér út í sjó þrátt fyrir kallt veður og skafrenning. Námskeiðið gekk vel og við vorum í mesta basli að fá þá í land aftur enda skemmtu þeir sér konunglega. Annað mál um okkur Tomma og undirritaðan sem stóðu frosnir í fjöruborðinu og horfðum á.  Einu mennirnir sem voru titrandi og skjálfandi af kulda voru ss við sem fórum ekki í sjóinn (hefðum betur gert það). Reglulega töldum við þá fimm en þá mætti sá sjötti sem var forvitinn selur sem greinilega hafði áhuga á sportinu. Eftir að strákarnir voru rúmlega tvo tíma í sjónum komu þeir loks til baka, búnir að fá sína útrás og sælir á svip. Við þökkum þeim kærlega fyrir daginn :)

Myndir af námskeiðinu eru komnar í myndasafn.

kv

LDL

 

Laust sæti á laugardaginn

Vegna forfalla er eitt laust sæti fyrir þann sem vill skella sér á námskeið á laugardaginn. Þetta er gott tækifæri því það er fullbókað næstu tvo mánuði.

Nánari upplýsingar í S:6607570 eða surf@surf.is

kv

Surf.is

 

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 7

blogspot visitor counter