Surfari á Travel Channel

Travel Channel sýnir þætti þar sem ofurskutlan Renee Bargh heimsækir framandi brimbrettastaði og sýnir hetjurnar sem hætta öllu til að ná stærstu og grimmustu öldum sem þessi pláneta okkar framleiðir. Þau hafa náttl. ekki komið til Íslands enn...

Þættirnir eru ss sýndir á laugardögum kl 21

Linkur á nánari upplýsingar á Travel Channel er að finna hér.

 

 

Frestun á Námskeiði 2

Við ætlum að fresta námskeiði 2 um viku vegna veðurs. Aðstæður henta ekki nógu vel þar sem ölduhæð er með hærra móti. Spáin gerir ráð fyrir amk 11m ölduhæð við sunnanvert landið.

 

Myndasafn

Þá er búið að laga myndasafnið okkar, fullt af myndum. njótið vel

kk

Admin

 

Viðbætur á surf.is

Nú þegar basic síðan er komin upp er næsta mál að fínisera og gera viðbætur.

Ma. má nefna að myndasafnið verður lagað þannig að hægt verður að skoða myndasöfn frá íslensku surfi. Auðvitað verða myndir frá námskeiðunum þarna á meðal. Aðsóknin hefur verið til fyrirmyndar og fór countið yfir 1000 heimsóknir laugardaginn síðasta.

Við bendum á að allar ábendngar eru vel þegnar.

Þangað til næst...

kv

surf.is

 

Velkomin á Surf.is

Á Íslandi hefur brimbrettaiðkun verið stunduð í mörg ár og sumstaðar á landinu aðstæður eins og þær gerast bestar í heiminum. Það eru fáir sem vita af þessu sporti enda hefur þetta ekki verið á yfirborðinu. Erlendir ferðamenn hafa heimsótt landið í þeim eina tilgangi að stunda surf. Við ætlum okkur að kynna þetta sport vel enda er þessi vefsíða tileinkuð þeim sem hafa áhuga að deila upplýsingum og hafa gaman af lífinu.

 

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 7 af 7

blogspot visitor counter