Surfdagurinn haldin hátíðlegur 26. júní

Surdagurinn verður haldin hátíðlegur næsta laugardag fyrir ykkur sem hafið komið á námskeið hjá okkur!
Dagskrá verður eitthvað á þessa vegu:
10:00: lagt af stað frá GG (söfnumst saman í bíla og brunum af stað, slatti kemst í Leðurblökuna)
11:00 – 15:00: surf ! (skiptist niður eftir hversu margir koma)
16:00: sund í Þorlákshöfn
18:30-19:00: Komum aftur í GG. Kaldir í klakafötu og Tommi grillar gæðahamborgara eftir leyniuppskrift langömmu sinnar
 
Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig. Minni á að þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem hafa keypt sér búnað til að hitta aðra sem eru að stíga sín fyrstu skref í surfinu.

 

Surfdagurinn 26 júní


Nú er komin endanlega dagsetning á surfdaginn en hann verður haldinn laugardaginn 26 júní. Dagurinn er tileinkaður þeim sem hafa ástundað námskeiðin hjá okkur í sumar og í fyrra og munum við gera okkur glaðan dag, surfa og grilla saman. Þeir sem vilja koma með geta skráð sig með því að senda póst á surf(hja)surf.is en nákvæm tímasetning mun liggja fyrir þegar nær drengur sem fer eftir veðri og sjólagi.

 

Enn bætist við vöruúrvalið í surfhorninu

Í surfhorni Gúmmíbáta & Galla var verið að bæta við fullt af skemmtilegum surf vörum, svo sem vatnsheldu mp3/ipod hulstri, vatnsheldum heyrnatólum, keylocker talnalás til að geyma bíllykilinn á meðan á surfi stendur, fleiri tegundir af viðgerðarefnum fyrir bretti og galla (ma Neoprene Queen sem lagar rifinn galla á 5mín), önnur sending af þakbogum, vaxi, eyrnatöppum og hinni sívinsælu C-Mat mottu/poka og fl. fl.

 

Brim & Grilldagur Surf.is

Surf.is ætlar að standa fyrir fríkeypis brim og grilldegi fyrir alla sem hafa sótt námskeiðin okkar. Við tjöldum öllu til og tökum allan búnað, enda stendur til boða að skella sér í svalandi öldurnar án endurgjalds. BodyBoard brettin eru þar engin undantekning enda skemmtileg viðbót.

Við hvetjum sérstaklega þá sem hafa keypt sér búnað að láta sjá sig, því í framhaldinu munum við halda utan um nýliðahóp sem hefur kost á hóa sig saman og deila tækninni sín á milli í náinni framtíð.

Við endum svo daginn á góðu grilli í boði Surf.is. Stefnt er á miðbik júní en nánari upplýsingar verða listuð hér þegar nær dregur.

 

Skráningin komin á fullt skrið fyrir vorið !!!

 

Skráningar hafa gengið vel þar sem af er komið enda höfum við bætt við brettum og göllum fyrir þetta síson. Ef þú vilt skrá þig á námskeið og komast að  í vor er best að gera það strax með því að smella á "námskeiðalinkinn" ! Einnig erum við farin að safna skráningum í fyrstu BodyBoard ferðina á Íslandi sem verður farin í maí.

Það stefnir í gott síson í vor !

 

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Síða 2 af 7

blogspot visitor counter