BodyBoard
Nú bjóðum við á skemmtilegan valmöguleika á námskeiðunum okkar því við höfum tekið inn 10stk af Alder Assasin bodyboard brettum. Alder Assasin brettin eru sterk og henta byrjendum og lengra komnum.
Töluvert auðveldara er að ná tökum á bodyboarding og þetta verður skemmtileg viðbót við námskeiðin hjá okkur.
Notast er við sérstök fit (froskalappir) til að drífa sig áfram og ná öldu. Nú er hægt að velja á milli eða prófa surf og bodyboard í einni og sömu ferðinni.
Skelltu þér á dagsnámskeið þar sem allur búnaður er innifalinn (Bretti, ól, galli, skór og hanskar). Farið verður í öll grundvallaratriði sem viðkemur tækni, búnaði, aðstæðum og öryggi. Síðan fá allir að spreyta sig á öldunum og enda daginn með stæl ! Ef þú ert að spá i að skella þér á námskeið, þýðir ekkert að bíða, heldur skrá sig og tryggja þér pláss.
- Verð 14.900 kr.
- Reyndir leiðbeinendur
- Allur búnaður innifalinn, besta sem völ er á tryggir hámarsk þægindi
- BodyBoard námskeið fyrir vinahópa -
Hægt er að óska eftir lokuðu námskeiði fyrir vinahópa. Til að óska eftir lokuðu námskeiði þarf að lágmarki fimm manns.
Lengd námskeiðs: 6-8 tímar
Mæting: Askalind 7, 201 Kópavogur
Surfstaðir: Þorlákshöfn, Sandvík ca 50km frá Reykjavík.
Erfiðleikastig: Einn af fimm.
Innifalið: Akstur fram og til baka, kennari, búnaður, kakó og kleinur.
Taka með: Hlý föt, handklæði, sundföt og góða skapið.
Smelltu hér til þess að skrá þig!



