Námskeiðin eru hafin
Skelltu þér á dagsnámskeið þar sem allur búnaður er innifalinn (Bretti, ól, galli, skór og hanskar). Farið verður í öll grundvallaratriði sem viðkemur tækni, búnaði, aðstæðum og öryggi. Síðan fá allir að spreyta sig á öldunum og enda daginn með stæl ! Ef þú ert að spá i að skella þér á námskeið, þýðir ekkert að bíða, heldur skrá sig og tryggja þér pláss.
- Verð 14.900 kr.
- Reyndir leiðbeinendur
- Allur búnaður innifalinn, besta sem völ er á tryggir hámarsk þægindi
- Námskeiðagjald getur gengið að fullu upp í búnað hjá Gúmmíbátum & Göllum og verður því fríkeypis !
- Eftir námskeið ertu sjálfkraffa skráð(ur) á póstlista surf.is þar sem þú getur hoppað með í laus námskeiðasæti fyrir 5 þús kjell eða leigt þér búnað fyrir vægt verð. Einnig tryggir þú þér þáttökurétt í ýmsum uppákomum eins og hinum árlega surfdegi, þar sem surf, grill og kaldur er fríkeypis !
- Surfnámskeið fyrir vinahópa -
Hægt er að óska eftir lokuðu námskeiði fyrir vinahópa. Til að óska eftir lokuðu námskeiði þarf að lágmarki fimm manns.
Lengd námskeiðs: 6-8 tímar
Mæting: Askalind 7, 201 Kópavogur
Surfstaðir: Þorlákshöfn, Sandvík ca 50km frá Reykjavík.
Erfiðleikastig: Fjórir af fimm.
Innifalið: Akstur fram og til baka, kennari, búnaður, kakó og kleinur.
Taka með: Hlý föt, handklæði, sundföt og góða skapið.



